<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, nóvember 29, 2004

Næsta vika.......... 

Jæja

Eins og er þá erum við að æfa grunnariði í knattspyrnu um þessar mundir hjá U11 og U12. Munum við haldi því áfram því þau eru svo mikilvæg, ef að grunnurinn á húsi er lélegur þá mun húsið að öllum líkindum hrynja. Ég (Teddi) var ekki á æfingum um helgin vegna þess að ég var á þjálfaranámskeiði KSÍ IV. Hér koma nokkur atriði til að minna ykkur á.
  1. Munið að borða hollan mat.
  2. Munið að fara snemma að sofa.
  3. Ekki gleyma að vinna heimaverkefnin (halda á lofti og styrkaræfingarnar).
  4. Munið að hafa hausinn í lagi.


Æfingarnar í vikunni:


Mánudagurinn 29.nóv, Egilshöll (inni)
U12 kl. 15:45-17:10

Þriðjudagurinn 30.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10

Föstudagurinn 3.des, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10
U12 kl. 15:45-17:10

Sunnudagurinn 5.des, Gervigrasið í Árbænum
Koma vel klæddir
U11 kl. 11:15-12:45 (byrjar kl 11:30)
U12 kl. 12:15-13:45 (byrjar kl 12:30)


Með kveðju
Teddi og Hólmar

laugardagur, nóvember 27, 2004

Einhver misskilningur í gangi...... 




Það er einhver misskilningur í gangi í sambandi við það hvort að það sé æfing á sunnudaginn eða ekki. Það sem stendur á blogginu á við um sunnudaginn 21.nóvember þegar að það var svo mikill snjór að það var ekki hægt að spila fótbolta eða neitt annað á vellinum. En svo þegar að þið flettið niður þá sjáið að það er æfing sunnudaginn 28.nóvember á sama tíma. Munið að þið þurfið að lesa allt það sem sendur á blogginu ekki bara fyrstu línurnar.

Sem sagt það verður æfing á sunnudaginn næstkomandi.


Með kveðju
Teddi og Hólmar

föstudagur, nóvember 19, 2004

Jæja strákar

Æfingin sem á að vera á sunnudaginn á gervigrasinu upp í Árbæ FELLUR NIÐUR vegna ófærðar á vellinum. Þannig að það verður frí hjá ykkur um helgina.


Æfingarnar í vikunni:


Mánudagurinn 22.nóv, Egilshöll (inni)
U12 kl. 15:45-17:10

Þriðjudagurinn 23.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10

Föstudagurinn 26.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10
U12 kl. 15:45-17:10

Sunnudagurinn 28.nóv, Gervigrasið í Árbænum
Koma vel klæddir
U11 kl. 11:15-12:45 (byrjar kl 11:30)
U12 kl. 12:15-13:45 (byrjar kl 12:30)


Með kveðju
Teddi og Hólmar

mánudagur, nóvember 15, 2004

Vika 15.- 21.nóvember 

Jæja gott fólk

Við erum ennþá að vinna í grunnþjálfun eða grunnatriðum fótboltans og munum hald því áfram næsta misserið. En sennilega í þessari viku munum við velja þessa 10-12 leikmenn sem taka þátt í Íslandsmótinu innanhús 18.desember nk. Mun þessi hópur bara innihalda leikmenn úr U12 en í þessum bolta spila 5 inn á í einu og þar af 1 markmaður.


Æfingarnar í vikunni:

Mánudagurinn 15.nóv, Egilshöll (inni)
U12 kl. 15:45-17:10

Þriðjudagurinn 16.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10

Föstudagurinn 19.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10
U12 kl. 15:45-17:10

Sunnudagurinn 21.nóv, Gervigrasið í Árbænum
U11 kl. 11:15-12:45 (byrjar kl 11:30)
U12 kl. 12:15-13:45 (byrjar kl 12:30)


Með kveðju
Teddi og Hólmar

sunnudagur, nóvember 07, 2004

Vikan 8.- 14. nóvember 

Jæja gott fólk

Í næstu viku sendum við til ykkar í tölvupósti það sem var sýnt á foreldrafundinum og það sem að við sýndum strákunum þegar að við vorum í Þorlákshöfn. Þetta gerum við til þess að leyfa ykkur að fylgjast með því sem að við erum að gera svo að þið séuð meðvituð um þær áherslur sem að við erum með. En við sendum þessar upplýsingar formönnum foreldrafélaganna sem senda þetta á ykkur. En við höfum tekið eftir því að strákarnir hafa verið að fylgjast með því sem að við vorum að segja í Þorlákshöfn. Við tökum eftir því vel á æfingum og þegar að við erum að ræða við þá. Þarna eru atriði um matarræði og hvenær við viljum að þeir fari að sofa og viljum við biðja ykkur um hjálp við að ítreka þau atriði við þá.


Æfingarnar í vikunni:

Mánudagurinn 8.nóv, Egilshöll (inni)
U12 kl. 15:45-17:10

Þriðjudagurinn 9.nóv, Egilshöll (úti)
U11 kl. 11:15-12:30 (ef að það verður verkfall)
Æfingin er úti vegna þess að tíminn féll niður inn í Egilshöll, þess vegna er æfingin á mölinni við Egilshöllina.

Föstudagurinn 12.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10
U12 kl. 15:45-17:10

Sunnudagurinn 14.nóv, Gervigrasið í Árbænum
U11 kl. 11:15-12:45
U12 kl. 12:15-13:45


Með kveðju
Teddi og Hólmar

mánudagur, nóvember 01, 2004

Vikan 1.- 7.nóvember 

Jæja gott fólk


Þá eru krakkarnir komnir í skólan aftur og komin tími til. En ekki lítur framhaldið vel út og gæti þetta endað í sama farinu áður en langt líður. Nú eru báðir hóparnir (U11 og U12) búnir að fara til Þorlákshafnar og skemmtu þeir sér mjög vel. Það var foreldrafundur síðasta fimmtudag og var hann fámennur því miður, þrátt fyrir að hafa verið auglýstur á blogginu. Ég vona að foreldrar muni fylgjast betur með blogginu í framtíðinni vegna þess að þetta er fréttasíðan hjá okkur í 5.flokki karla (U11 og U12). En ég vill þakka þeim fyrir sem komu á fundinn kærlega fyrir góðan fund. Þar var farið yfir markmið flokksins á þessu tímabili, hvaða atriði við myndum fara yfir á æfingum og einnig hvaða mót væru í boði þetta árið. Foreldrafundirnir eru ykkar vettvangur til þess að láta skoðanir ykkar í ljós og fá svör við spurningu sem að brenna á ykkur.

Æfingarnar í þessari viku verða á þessa leið:

Mánudagurinn 1.nóv, Egilshöll (inni)
U12 kl 15:45-17:10

Þriðjudagurinn 2.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:45-16:10

Föstudagurinn 5.nóv, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:45-16:10
U12 kl 15:45-17:10

Athugið sérstaklega staðsetningu næstu æfingar.............................

Sunnudagurinn 7.nóv, Gervigrasið í Árbænum (úti)
U11 kl 11:15-12:40 (koma vel klæddir)
U12 kl 12:15-13:40 (koma vel klæddir)


Linkurinn á æfingartöflur Fjölnis er:

http://www.fjolnir.is/myndir/t2.htm



Með kveðju
Teddi og Hólmar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?