<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Breyting vegna veðurs 

Jæja strákar

Æfinginn sem átti að vera í dag, fellur niður vegna veðurs. En í staðinn verður æfing á morgun miðvikudaginn 01. september, inn í Egilshöll. Munið líka að það er haustmót næstu helgi.

Sjáið klukkan hvað æfingin er hér að neðan.


Kveðja Teddi

mánudagur, ágúst 30, 2004

Fjölskyldudagur 5.flokks 

Góðan daginn gott fólk


Við tókum okkur til 5.fl.kk hjá Fjölni og brugðum okkur í bíó. Eftir bíóið fórum við upp í Dalhús þar sem að voru settar upp boltaþrautir þar sem iðkenndur gátu athugað ástandið á mömmu, pabba, sytskinum, ömmu, afa og sjálfum sér, einnig komu í heimsókn nokkrir meistaraflokksleikmenn. Svo var endað á því að það var grillað fyrir alla og lék góða veðrið við okkur.

Fannst mér þetta takast vel í alla staði hjá okkur. Vill ég koma þakklæti til þeirra sem lögðu hönd á plógin og gerðu þetta mögulegt.

Hér að neðan eru æfingar út tímabilið.

Með kveðju Teddi S

Dagskráin 31.ágúst - 14.sept 


Þriðjudagurinn 31. ágúst, grasið við Egilshöll

FELLUR NIÐUR VEGNA VEÐURS


Miðvikudagurinn 01. september, inn í Egilshöll
U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00

Fimmtudagurinn 02. september, inn í Egilshöll
U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00

Helgin 03.-05. september. Þá er Haustmótið hjá 5. flokki og verður það á þá leið að strákarnir spila ca. 3-4 leiki sama daginn og fara svo heim að því loknu. Við skráðum 12 lið í þetta mót.

Þriðjudagurinn 07. september, inn í Egilshöll
U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00

Fimmtudagurinn 09. september, inn í Egilshöll
U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00

Þriðjudagurinn 14. september, inn í Egilshöll
U12 14:45-16:00
U11 15:45-17:00


Þessi dagskrá gæti breyst, fylgist vel með blogginu.


Með kveðju Teddi S

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Það sem er eftir af tímabilinu.........sennilega...... 

Föstudagurinn 27. ágúst, miðgras

U11 & U12 kl 14:45-16:15 (allir saman)
Munið að koma með 1000.- kr fyrir bíóið og grillið á sunnudaginn.

Svo er skyldumætting á leikinn, er það ekki ?

Fjölnir - Stjarnan mfl.kk
Fjölnisvöllur, kl 18:30


Laugardagurinn 28. ágúst

Svo er skyldumætting á leikinn, er það ekki ?

Fjölnir - ÍBV mfl.kvk
Fjölnisvöllur, kl 14:00


Sunnudagurinn 29. ágúst, fjölskyldudagur 5. flokks karla

Á þessum degi vonumst við eftir að sem flestir sjái sér fært um að taka þátt, foreldrar, systur og bræður, ömmur og afar og langömmur og langafar.

kl 13:45 vera mætir í Sambíó Álfabakka, keyrðir af foreldrum
kl 14:00 sýning hefst á stórmyndinni "Thunderbirds"
kl 15:45 iðkenndur sóttir af foreldrum eða vandamönnum niður í Álfabakka
kl 16:15 verður opnað fyrir þrautir fyrir unga jafnt sem gamla
kl 17:00 firstu pylsurnar verða borðaðar
kl 18:00 dagskrá líkur


Þriðjudagurinn 31. ágúst, grasið við Egilshöll

U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00


Fimmtudagurinn 02. september, inn í Egilshöll

U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00


Helgin 03.-05. september

Þá er Haustmótið hjá 5. flokki og verður það á þá leið að strákarnir spila ca. 3-4 leiki sama daginn og fara svo heim að því loknu. Við skráðum 12 lið í þetta mót.


Þriðjudagurinn 07. september, inn í Egilshöll

U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00


Fimmtudagurinn 09. september, inn í Egilshöll

U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00


Þriðjudagurinn 14. september, inn í Egilshöll

U12 14:45-16:00
U11 15:45-17:00


Þessi dagskrá gæti breyst, fylgist vel með blogginu.


Með kveðju Teddi S

sunnudagur, ágúst 22, 2004

Á næstunni ............. 

Jæja strákar

Skólinn byrjar í þessari viku og munið að ef að þið ætlið að verða góðir í fótbolta þá þurfum við að standa okkur vel í skólanum líka því að oft haldast þessir hlutir í hendur. Sjálfsagi kemur þar mikið við sögur td. að læra alltaf strax eftir skóla, (nema að það sé æfing, þá lærið þið strax eftir æfingu) ekki bíða með það fram á kvöld þegar að þið eruð orðnir þreyttir og sljóir. Munið að fara snemma að sofa því að líkaminn þarf á sinni hvíld að halda ef að hann á að virka vel fyrir ykkar hönd. Þetta er allt undir ykkur komið hvenig þið ætlið að standa ykkur ekki mömmu og pabba, kennaranum eða þjálfaranum. Mikilvægasti líkamshlutinn í fótbolta er hausinn og í skólanum eruð þið að æfa hann, munið það.

Næstu helgi ætlum við allir að reyna að fara í bíó saman, sennilega laugardag eða sunnudag og gera svo eitthvað skemmtilegt á eftir með foreldrunum. Kemur þetta allt í ljós í vikunni.

Haustmótið fer fram helgina 3.-5. september og erum við þar með 12 lið svo að það fá allir að spila. Ef að ég man rétt þá eiga U11 að spila 3. september en U12 4. og 5. september, meira um þetta seinna.


Mánudagurinn 23. ágúst

Breiðablik - Fjölnir mfl.kk
Kópavogsvöllur, kl 18:30


Miðvikudagurinn 25. ágúst, miðgrasið

U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00



Með kveðju Teddi S

fimmtudagur, ágúst 19, 2004

Góðan daginn gott fólk

Höttur út í mýri, setti upp á sig stýri, út er ævintýri. Það er voðalega lítið annað hægt að segja um atburði síðustu daga. En því miður urðu smá mistök hjá KSÍ sem setti okkur inní úrslitakeppnina.

En reglugerð KSÍ er eftirfarandi:

Eftir svæðakeppni skal fara fram úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn og skal skipa félögum í fjóra riðla sem hér segir: (Úrslitakeppni skal ekki fara fram í keppni C og D liða).
Riðill 1: A1, A3 og C1.
Riðill 2: A4, B2 og B3.
Riðill 3: A2, E1 og D1.
Riðill 4: B1, E2 og F1.

Ef keppni fer ekki fram í D riðli skal lið F2 koma í stað D1.

Eins og stendur þarna eigum við liðið sem lenti í 5. sæti í samanlögðum árangri ekki rétt á þessu sæti þarna og þess vegna förum við ekki til Sauðarkróks næstu helgi. En ef að Höttur sem lenti í 2. sæti í F riðlinum hefði ekki þegið þetta boð þá hefðum við dottið inn.


Föstudagurinn 20. ágúst, miðgrasið

U12 kl 09:45-11:00
U11 kl 10:45-12:00


Mánudagurinn 23. ágúst

Breiðablik - Fjölnir
Kópavogsvöllur, kl 18:30


Miðvikudagurinn 25. ágúst, miðgrasið

U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00



Með kveðju Teddi S


fimmtudagur, ágúst 12, 2004

Dagskráin 18.-25. ágúst 

Jæja gott fólk

Það verða smá breytingar á dagskráni þessa vikuna vegna þess að ég var að fá skemmtilegar fréttir frá yfirþjálfara vorum. Hann tjáði mér það að 5. fl. karla væri komin inn í úrslitakeppninna. Það sem gerðist var það að BÍ dró sig úr keppni og liðið sem lenti í 5. sæti í A. riðli í samanlögðum árangri fer í keppnina í staðin. Viti menn það vorum við Fjölnir sem lentum í því sæti. Ég vel ca. 20 manna hóp til þess að fara í keppnina sem fer fram á Sauðarkróki. Það sem að vegur þungt hjá mér þegar að ég þarf að velja í svona hóp er hvernig hausinn á mönnum er og hvernig þeir hafa hagað sér utan sem og innan vallar. Ég hef leyfi til þess að velja úr öllum 5. flokknum eins og hann leggur sig, sem sagt U11 og U12. Foreldraráðið er í þessum töluð orðum að skipuleggja þessa ferð og sú sem að stjórnar því er hún Lena og er síminn hjá henni 820-5329. Sennilega verður farið á einkabílum á föstudaginn eftir vinnu og spilaðir verða 2 leikir á laugardaginn og ræðst framhaldið af því hvernig gengur í þeim.


Miðvikudaginn 18.ágúst, æfing á miðgrasið

Eftirtaldir leikmenn eiga að mæta á æfingu kl 09:45-11:00 :

Nú verður liðsandinn að virka, það verður að láta alla vita af þessu sem eru á listanum, ég tala við U11 strákanna. Koma með sundföt.

Markmenn:
Arnar Freyr Ólafsson U11
Guðmundur J. Arngrímsson U12
Kolbeinn Þorbergsson U12
Leifur Kristjánsson U12

Útileikmenn:
Andri Snær Helgason U12
Aron Sigurðsson U11
Bersveinn Ólafsson U12
Baldvin Þór Gestsson U12
Guðfinnur Magnússon U12
Gunnar Alexander Sigurbjörnsson U12
Hannes Halldórsson U12
Henrý Guðmundsson U12
Hlynur Árni Sigurjónsson U12
Jóhann Óli Þorbjörnsson U12
Kristinn Örn Valdimarsson U12
Ólafur Barði Guðmundsson U12
Páll Dagbjartsson U12
Reynir Már Sveinsson U12
Róbert Steinar Hjálmarsson U12
Rúnar Sigmundsson U12
Styrmir Árnason U12


Fimmtudaginn 19. ágúst, grasið við Egilshöllinna

U12 kl 09:45-11:00
U11 kl 10:45-12:00
Þeir sem fara á Sauðarkrók
æfing kl 12:15-13:30 á miðjugrasinu


Föstudagurinn 20. ágúst, grasið við Egilshöllinna

U12 kl 09:45-11:00
U11 kl 10:45-12:00

Lagt af stað á Sauðarkrók kl ?


Laugardagurinn 21. ágúst, Sauðarkrókur

Leikur hjá A liðinu kl 11:00 við KA
Leikur hjá B liðinu kl 12:00 við KA

Leikur hjá A liðinu kl 16:30 við ÍA
Leikur hjá B liðinu kl 17:30 við ÍA


Sunnudagurinn 22. ágúst, Sauðarkrókur

Leikur hjá A liðinu ?
Leikur hjá B liðinu ?


Miðvikudagurinn 25. ágúst, grasið við Egilshöllinna

U12 kl 14:45-16:00
U11 kl 15:45-17:00



Með kveðju Teddi S


miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Leiknismótið fyrir U11 

Foreldraráð U11 hefur ákveðið að fara með þá sem að vilja á Leiknismótið sem fer fram helgina 13.-15. ágúst á æfingarsvæði Leiknis. Mun þá A liðið spila í B eða C liða keppninni og svo koll af kolli, það er gert til þess að þeir fái að spila við jafnaldra sína.


Hér er smá pistill um mótið:

Knattspyrnuveisla 5. flokks drengja hefst föstudaginn 13. ágúst 2004 og stendur til sunnudagsins 15. ágúst en þá verður haldið Landsbankamót Leiknis. Þar keppa um 290 strákar úr 8 liðum í 4 riðlum A,B,C og D. Á Landsbankamóti Leiknis verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem áhersla er lögð á að öll fjölskyldan geti skemmt sér saman. Því eru foreldrar, systkini, frændur og frænkur, afar og ömmur sérstaklega boðin velkomin.

Svæði Leiknis og nágrenni þess er allt hið glæsilegasta fyrir mót sem þetta. Á svæðinu er allt til alls, vegalengdir litlar og allt innan 100 metra radíus frá Leiknissvæðinu. Skólar þar sem gist verður, sundlaug, félagsmiðstöð, heilsugæsla og verslanir.

Mótsgjald verður 2.500,- fyrir hvern þátttakenda. – frítt fyrir 2 þjálfara með hverju liði og einn fararstjóra á hvern flokk.

Mótið verður sett formlega kl. 12 föstudaginn 13. ágúst og byrja fyrstu leikirnir tímanlega kl. 13:20. Spilað verður á hinu nýja gervigrasi og á venjulegu grasi. Mótinu verður slitið sunnudaginn 15. ágúst.

Á föstudeginum eftir síðasta leik dagsins verður boðið upp á pylusveislu í skógarlundi í miðju Efra Breiðholti við Leiknissvæðið. Síðan verður öllum þátttalendum boðið í sundlaugapartý þar sem boðið verður upp á óvænta dagskrá.

Á laugardeginum hefjast fyrstu leikir kl. 9:00 og milli leikja verður öllum þátttakendum boðið í Go-gart í sérstakri braut sem er á svæðinu. Síðari hluta dags verður haldin EM-keppni þar sem öllum keppendum verður skipt niður á landslið og verður úrslitakeppni í EM-keppninni kl. 19:45. Að loknum lokaleik dagsins verður kvöldvaka í Austurbergi þar sem boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.

Á sunnudegi verða allir úrslitaleikir og þeim lokið um 15:30 og hefst þá verðlaunahátíð í Austurbergi þar sem verðlaunuð verða fyrstu 3 sætin í hverjum riðli, krýndir verða EM-meistarar. Markahæstu leikmenn í öllum riðlum sérstaklega heiðraðir og hann sem á flestar stoðsendingar, öflugasti stuðningshópurinn, prúðasta liðið svo eitthvað sé nefnt. Mótsslit um 17:30.

Með kveðju foreldraráðið og þjálfarar

Æfingar á næstunni 

Miðvikudaginn 11.ágúst, leikir hjá U11 & U12

U11 spilar við Hauka á Ásvöllum, A & C kl 17:00 og B & D kl 17:50
Mæting 45 mín fyrir leiktíma og þeir sem mættu ekki á fundinn í dag kl 11:30
eiga að mæta kl 16:15 og tala við Tóta.

U12 spilar við ÍR á ÍR-vellinum, A & C kl 17:00 og B & D kl 17:50
Mæting 45 mín fyrir leiktíma og þeir sem ekki mættu á fundinn í dag kl 11:00
eiga að mæta kl 16:15 og tala við Tedda.


Fimmtudagurinn 12. ágúst, æfingar á grasinu við Egilshöllina

U12 kl 09:45
U11 kl 10:45


Föstudagurinn 13. ágúst

Nánar síðar



Með kveðju Teddi


mánudagur, ágúst 09, 2004

Æfingar 

Mánudagurinn 9. ágúst, á miðjugrasinu

Á venjulegum tíma


Þriðjudaginn 10. ágúst, á miðjugrasinu

U12 kl 09:45-11:00
U11 kl 10:45-1200



Teddi S

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

Nú hefst alvaran................ 

Föstudagurinn 06.ágúst, æfing hjá U11 á miðgrasinu og leikir hjá U12

U11 kl 09:45-11:00
U12 kl 11:00 fundur hjá Dalhúsum (liðin tilkynnt)

Leikir hjá U12 A, B, C og D1 liði við ÍA á Fjölnisvellinum kl 17:00/17:50
og hjá U12 D2 við FH í Kaplakrika kl 17:00.


Nú þurfa strákarnir í U12 að vera tilbúnir, því nú hefst alvaran. Nú þurfa allir að einbeita sér að þeim verkefnum sem eftir eru. Það er bara ein spurning sem að ég hef " Vilja menn komast í úrslitakeppninna eða ekki ?" Leikurinn við ÍA er löngu byrjaður og það er bara eitt í boði þar. Eins og þið getið lesið hérna þá er ég mættur á svæðið og það verður tekið á því á morgun.



Með kveðju Teddi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?