<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, ágúst 29, 2005

Ja hér hérna.......... 

Jæja strákar

Þetta er nú búið að vera flott sumar hjá okkur. Essómótsmeistarar, Íslandsmótið þar vorum við í 3. sæti í A og B liðum, ÍSLANDSMEISTARAR í C liðum, í 3. sæti í D liðum U12 og 6. sæti í D liðum U11. Munið að allur 5. flokkurinn á þátt í þessum árangri ekki bara þeir sem voru að spila í úrslitakeppninni, MUNIÐ ÞAÐ.
-
En næst á dagskrá hjá okkur er Haustmót KRR og fer það fram í Egilshöllinni í september, nánar um það síðar. Það er næst æfing hjá ykkur á fimmtudaginn, sjá hér að neðan.......
-

Fimmtudagurinn 1.sept, grasið við Egilshöllina
U11 kl 14:50-16:00
U12 kl 15:50-17:00



Með kveðju Teddi

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Dagskrá helgarinar...... 

Jæja strákar mínir og foreldrar

Nú fer úrslitakeppni C og D liða fram næstkomandi sunnudag. Eins og þið gerið ykkur grein fyrir þá geta ekki allir spila í þessum úrslitum og því þurfa, því miður nokkrir að sitja heima. Þeir sem eiga að mæta eiga að koma með nesti og ávexti með sér. En hér að neðan eru nöfn þeirra sem eiga að mæta og klukkan hvað mæting er:

Allir leikirnir fara fram á Stjörnuvellinum í Garðabæ.

C lið U12, mæting kl 10:50

Hópurinn:
Alfreð Kárason, Bjarki Pétursson GK, Daníel Birgisson, Freyr Hreiðarsson, Gísli Pálsson, Hlynur Þorsteinsson, Jón Jónsson, Stefán Snæbjörnsson, Stéfán Sigurðsson, Svavar Guðjónsson, Sveinn Pálsson og Þórður Johnsen.

Leikir:
kl 11:20 Fjölnir vs. KR
kl 12:40 Fjölnir vs. FH 2

D lið U12, mæting kl 11:30

Hópurinn:
Bjartur Hjaltason, Brynjar Sigurðsson, Davíð Hauksson, Egill óskarsson GK, Grétar Davíðsson, Guðni Örvarsson GK, Hilmar Óskarsson, Hjörleifur Þórisson, Kristján Finnsson, Lars Gunnarsson, Maron Guerreiro, Sigvaldi Sigurðarson og Leifur Arason.

Leikir:
kl 12:00 Fjölnir vs. HK
kl 13:20 Fjölnir vs. ÍR

D lið U11, mæting kl 10:10

Hópurinn:
Runólfur Guðmundsson, Ingvar Hjartarson, Guðmundur Guðmundsson, Andréas Gunnarsson, Gunnar Gunnarsson, Ingvi Marínósson, Björn Björnsson, Þór Jónasson, Ingvar Þorsteinsson,
Hákon Ellertsson, Brynjar Jóhannesson, Friðbjörn Hrafnsson GK og Guðmundur Sverrisson GK.

Leikir:
kl 10:40 Fjölnir vs. Stjarnan
kl 13:20 Fjölnir vs. Fylkir


Sjáumst hress og kát

með kveðju Teddi

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Næsta æfing.... 

Jæja strákar

Þá heldur tímabilið áfram. En munið að fara snemma að sofa svo að þið náið að hvílast og svo að þið mætið óþreyttir í skólann.

Fimmtudagurinn 25.ágúst, grasið við Egilshöllina
U11 kl 14:45-16:00
U12 kl 15:45-17:00


Sjáumst hressir, kveðja Teddi

sunnudagur, ágúst 21, 2005

Sunnudagurinn 21.ágúst..... 

Jæja strákar

Við mætum í dag kl 10:00 í Fífuna galvaskir og tilbúnir í slaginn. Byrjuðum að undirbúa leikina við Breiðablik í A og B liðum í undanúrslitum, mikill spenna var í loftinu. Við unnum 4-1 í B en töpuðum í 0-1 í A. En engu að síður þá er þetta mjög góður árangur hjá strákunum, að lenda í 3-4 sæti á Íslandsmótinu, ekki slæmt það. Þeir geta borið höfuðið hátt og verið stoltir. En gerum okkur grein fyrir því að næstu helgi þá er úrslitakeppni C og D liða þar sem að við erum með 1 C lið og 2 D lið að berjast um dolluna þannig að við höfum ekki sagt okkar síðasta í Íslandsmótinu 2005, langt í frá.

Næsta æfing er:

Þriðjudaginn 23.ágúst, grasið við Egilshöllina
U11 kl 14:45-16:00
U12 kl 15:45-17:00



En svona var dagurinn hjá okkur:

Laugardagurinn 21.ágúst

Fjölnir vs. Breiðablik (B lið) úrslit 4-1
Kjarri 13 mín
Staðan í hálfleik 1-0 fyrir okkur
Þorlákur 33, 35 og 38 mín

Þarna spiluðum við vel spilandi lið Breiðabliks og litlu munaði að við myndum fá á okkur mark á 1 mín, en við spiluðum vel og brutum ísinn á 13 mín. Svo vörðust Breiðablik mjög vel og við skoruðum ekki mark no 2 fyrr en á 33 mín og þá gáfust Breiðablik strákarnir upp og veið settum 2 í viðbót. Vorum betri allan tíman.

Fjölnir vs. Breiðablik úrslit 0-1
Staðan í hálfleik 0-0

Þetta var hörkuleikur á milli tveggja góðara liða, við vorum passívir í byrjun en áttum okkar spretti. Það er ekki hægt að segja annað en að Breiðablik hafi legið svolítið á okkur en við fengum tækifæri sem að við nýttum ekki. En það sem að skar út um þennan leik voru smá mistök hjá okkur í vörninni sem enduðu með því að þeir skoruðu. En mér fannst okkar menn vera þungir og þreyttir í leiknum og við hefðum getað gert betur.


Með kveðju Teddi

laugardagur, ágúst 20, 2005

Laugardagurinn 20.ágúst 

Jæja strákar

Sigrarnir verða ekki sætari en þessir, það kom að því að við unnum þessa Fylkismenn. Eins og ég hef sagt ykkur áður þá eruð þið góðir í fótbolta, ef að hausinn á ykkur er í lagi ! Þarna gerðu þið það sem að þið áttuð að gera og fylgduð skipulaginu út í ystu æsar. Niðurstaða undanúrslit hjá 5.fl Fjölni A og B liðum. Flott hjá ykkur en leikurinn á morgun við Blikanna verður erfiður, því get ég lofað ykkur. En þetta er allt undir ykkur komið hvað þið eruð tilbúnir að leggja í leikinn, er það ekki ? Nú er það spurningin hvenær þið farið að sofa, hvað þið borðið og að þið ofmetnis ekki, það er hættulegt.

En það er mæting kl 10:00 á morgun í Fífuna og alveg eins og í dag þá spilar B liðið á undan kl 11:00 og A liðið kl 12:00 við Breiðablik.

Laugardagurinn 20.ágúst

Fjölnir vs. Fylkir (B lið) úrslit 3-0
Staðan í hálfleik var 0-0
Þorlákur 33 og 36 mín
Andri 39 mín

Við vorum betri en vorum seinir að klára þetta en gerðum það vel á endanum.

Fjölnir vs. Fylkir (A lið) úrslit 1-0
Staðan í hálfleik var 0-0
Bjarni 26 mín úr víti (sem var fengið eftir brot á honum á leiðinni í gegn)

Hörkuleikur þar sem að okkur nægði jafntefli en á bakvið þennan sigur var mikill varnarvinna þar sem að var unnið eftir því sem var sett upp fyrir leikinn. Lokuðum vel á þær hliðar sem að Fylkir eru bestir í og það gekk mjög vel upp og virtist aldrei verða hætta. Við fengum hættulegri færi en Fylkismenn og hefðum átt að setja 1 mark í viðbót.


kveðja Teddi

föstudagur, ágúst 19, 2005

Dagurinn í dag og framhaldið........... 

Jæja strákar

Dagurinn í gær skilaði okkur í 8 liða úrslit, það er á hreinu. 7 stig í hús en hefðu átt að vera 10 en svona er fótbolti. Það sem að við getum lært af deginum í gær er að gera hlutina á einfaldan hátt, nota fáar snertingar og klára fyrr. En í gær vorum við of gjarnir að reyna alltaf að fara lengra með boltan og klára ekki strax, en það sem er svo skemmtilegt við fótboltan er að við erum alltaf að læra.

Við spilum við Fylki í 8 liða úrslitum og þurfum við allir að mæta einbeitir til leiks, en það er mæting kl 15:30 í Fífuna. Það sem er öðruvísi við daginn í dag er það að B liðið spilar á undan og er leikurinn þeirra kl 16:30 en leikurinn hjá A liðinu er kl 17:30, en það eiga allir að mæta kl 15:30.

En svona gekk þetta í gær:

Fjölnir vs. KR (A lið) úrslit 3-4
Aron 3 mín
Staðan í hálfleik var 1-2 fyrir KR
Ingi 30 og 32 mín

Þarna vorum við miklu sterkari aðilar í leiknum og fengum ca. 20 færi en KR fékk 6 en svona er fótbolti. Þeir vinna leikinn sem skora fleiri mörk.

Fjölnir vs. KR (B lið) úrslit 3-1
Þorlákur 16 mín
Staðan í hálfleik 1-0 fyrir okkur
Siggi 33 mín
Kjarri 40 mín

Eins og fyrri leikurinn þá vorum við miklu betri en náðu ekki að setja fleiri mörk.

Fjölnir vs. HK (A lið) úrslit 3-2
Bjarni 8 mín
Staðan í hálfleik 1-2 fyrir HK
Aron 36 mín
Bjarni 38 mín

Þetta var mikill barráttuleikur og vorum við frekar heppnir að fá ekki fleiri mörk á okkur en strákarnir áttu góðan endasprett í þessum leik og sýndu karakter og kláruðu leikinn.

Fjölnir vs. HK (B lið) úrslit 4-1
Kjartan 20 mín
Staðan í hálfleik 1-0 fyrir okkur
Sverrir 25 og 31 mín
Krissi 40 mín

Þarna unnum við skemmtilegt lið HK sem gerði okkur erfitt fyrir en við vorum betri í þessum leik og því úrslitin sanngjörn.


Með kveðju Teddi

Dagskrá 19.-28.ágúst 

Jæja strákar

Það er búið að vera mikill keyrsla á æfingunum hjá okkur í vikunni, sem er bara gott mál. Nú styttist í það sem að allir hafa beðið eftir "Úrslitakeppnina". Eins og áður hefur komið fram þá erum við með 5 lið af 9 liðum sem að við skráðum til keppni í Úrslitakeppninni þetta árið og munaði mjög litlu að 2 í viðbót hefðu farið inn. En engu að síður mjög góður árangur hjá strákunum.

Úrslitakeppni A og B liða fer fram helgin 19.-21.ágúst á Smárahvammsvelli í Kópavogi. Við byrjum á því að spila 2 leiki á föstudeginum 19.ágúst og fer það eftir því hvernig okkur gengur í þeim hvernig framhaldið verður hjá okkur.

Svona lítur dagskráin út:

Föstudaginn 19.ágúst, leikur við KR
kl 14:00 (A lið) og kl 14:50 (B lið)
Föstudaginn 19.ágúst, leikur við HK
kl 17:00 (A lið) og kl 17:50 (B lið)

En nú er í fyrsta skipti verður Úrslitakeppni C og D liða og fer hún fram 28.ágúst á Stjörnuvellinum í Garðabæ. En þar erum við með 1 C lið og 2 D lið og eru það 6 C lið og 6 D lið sem mæta þar til keppni, en nánar um hana síðar.

Núna fer skólinn að byrja og breytast þá æfingatímarnir hjá okkur, en nú fer hvíldin/svefninn að skipta miklu máli. Því þreyttur námsmaður er eins og þreyttur knattspyrnumaður honum gengur ekki vel ef hann mætir þreyttur í leik. En æfingatímarnir verða eins og hér segir:

Þriðjudaginn 23.ágúst, grasið við Egilshöllina
U11 kl 14:45-16:00
U12 kl 15:45-17:00

Fimmtudaginn 25.ágúst, grasið við Egilshöllina
U11 kl 14:45-16:00
U12 kl 15:45-17:00

Sunnudagurinn 28.ágúst, Úrslitakeppni C og D liða á Stjörnuvellinum í Garðabæ.
nánar síðar........


Með kveðju Teddi

mánudagur, ágúst 15, 2005

Vikan hjá okkur...... 

Jæja strákar

Nú er það ljóst að það eru kominn 5 lið af 9 liðum í úrslitakeppnina hjá okkur sem er ekki slæmur árangur hjá 5.flokki.

  1. 1 x A lið U12
  2. 1 x B lið U12
  3. 1 x C lið U12
  4. 1 x D lið U12
  5. 1 x D lið U11

Nú hef ég skipt hópunum upp til að geta einbeitt mér betur af þeim sem fara í úrslitakeppnina. Strákarnir vita í hvaða hóp þeir eru og hvenær þeir eiga að mæta. En hóparnir geta breyst á næstu dögum og fara æfingarnar fram á miðgrasinu.

Dagskrán 16., 17. og 18. ágúst er:

U11 kl 09:00-10:15

B hópur (sá hópur sem valið er úr til að spila í úrslitum C og D liða U12) kl 10:00-11:15

A hópur (sá hópur sem hefur verið valinn til að spila í úrslitum A og B liða U12 + 4 úr U11, hópurinn getur breyst) kl 11:00-12:30

En úrslitakeppni A og B liða fer fram næstu helgi eða 19.-21. ágúst á Smárahvammsvelli í Kópavogi. En er ekki kominn staðsetning né tímasetning á úrslitakeppni C og D liða.

Með kveðju Teddi


fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Alltaf hressir...... 

Jæja strákar

Það er glæsilegur árangur hjá ykkur í U12 á þessu tímabili í A riðli og hefur U11 staðið sig mjög vel líka í C riðli á þessari leiktíð. Þessi árangur er kominn vegna þess að þið (leikmenn) hafið verið að hlusta og þið hafið tekið vel eftir á æfingum enda sést það á spilamennskunni hjá okkur í öllum liðum. En nú taka önnur verkefni við og samkvæmt nýjustu upplýsingum þá verða verkefni fyrir A, B, C og D lið í U12.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Eins og fólk veit þá vann A og B liðið sér þáttökurétt í úrlitakeppninni með sigri á ÍR á miðvikdaginn. En það sem að ég (þjálfari) og foreldraráð vissum ekki er það að það verður úrslitakeppni fyrir C og D liðin líka, fengum þær upplýsingar í dag.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Eftir að foreldraráðið fékk þessar nýju upplýsingar í hendur og sáu fram á komandi verkefni þá ákváðu þau að sleppa mótinu á Selfossi sem átti að fara á næstu helgi. Þessi ákvörðun er tekin með hag iðkennda fyrir brjósti og með upplýsingum frá KSÍ um væntanleg verkefni leikmanna sem gætu byrjað strax í næstu viku. Einnig mun vera sendur netpóstur til forráðamanna leikmanna í dag með nánari upplýsingum.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Hjörleifur Steinn er 12 ára í dag og óskum við honum til hamingju með daginn 11.ágúst.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Mjög mikilvægt er að strákarnir í U12 mætti á æfingu á mánudaginn næstkomandi.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Mánudagurinn 15.ágúst, miðgrasið
U11 kl 09:00-10:30
U12 kl 10:00-11:30
------------------------------------------------------------------------------------------------
Með kveðju

föstudagur, ágúst 05, 2005

Allt opið og undir okkur komið...... 

Jæja strákar



Nú er komin spenna í þetta hjá okkur í U12 sem spilum í A riðli (1.deild). D liðið okkar spilar á móti ÍR næst og ef þeir vinna hann þá verða þeir í 2. sæti í Íslandsmóti D liða (ekki slæmur árangur það). C liðið okkar spilar á móti ÍR næst og verða vinna hann til þess að verða Íslandsmeistarar C liða (ekki slæmt). A og B liðin okkar hafa möguleika til þess að komast í úrslitakeppnina en til þess að vera örrugir með það þá verða þeir að vinna ÍR í næsta leik en þar erum við í harðri barráttu við ÍA, og Breiðablik um sæti 3.-4. í samalögðum árangri. Til þess að komast í úrslitakeppnina þá verðum við að verða í 1.-4. sæti í samanlögðum árangri A og B liðanna í A riðli en C og D lið spila í sér keppni.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Það er nú ekki slæmur árangur hjá U11 sem spila í C riðli (3. deild). D liðin okkar (2) eru í 2. og 4. sæti og nokkrir leikir eftir og þar er allt opið ennþá. C liðið okkar er í 2 sæti og við stefnum á 1 sætið þar, að sjálfsögðu. Í C riðli spilar A og B liðið saman líka og þar erum við í 2. sæti í samanlögðum árangir og þar stefnum við á 1.sætið sem skilar okkur farseðli upp í B riðill (2.deild) á næsta ári og einnig úrslitaleik um að komast í úrslitakeppnina meðal þeirra bestu.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Eins og þið sjáið á þessu þá erum við að berjast í toppbarráttuni allstaðar í þessum 9 liðum sem að við erum með í Íslandsmótinu. En nú þurfum við á allri þeirri hjálp að halda sem að við getum fengið og hver er hún ? Nú að sjálfsögðu að við fjölmennum á völlinn og styðjum strákanna okkar með jákvæðum og uppbyggjandi köllum inn á völlinn, ÁFRAM FJÖLNIR.


Dagkráin hjá okkur á næstunni:

Mánudagurinn 8.ágúst
U11 kl 09:00-10:15
U12 kl 10:00-11:30

Þriðjudagurinn 9.ágúst
U11 kl 09:00-10:15
U12 kl 10:00-11:30

Miðvikudagurinn 10.ágúst
U11 kl 09:00-10:15
U12 kl 10:00-11:30
Leikir hjá U11 A og B liðum við Selfoss á útivelli. Það á að mæta kl 11:30 við Dalhús með nesti og 500.- kr, lagt verður af stað kl 12:00 með rútu frá Dalhúsum. En leikirnir byrja kl 13:30 hjá A en kl 14:20 hjá B.
Leikir hjá U12 A, B, C og D liðum við ÍR á Aðalvellinum við Dalhús.

Fimmtudagurinn 11.ágúst
U11 kl 09:00-10:15
U12 kl 10:00-11:30
Leikir hjá U11 C, D2 og D3 liðum við KR2 og Breiðablik2 á útivelli, nánar síðar.

Föstudagurinn 12.ágúst FRÍ frí FRÍ frí FRÍ


Með kveðju Teddi S

This page is powered by Blogger. Isn't yours?