<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, janúar 31, 2005

Á næstunni............... 

Jæja strákar

Nú er búið að opna Gervigrasið í Árbænum og við getum farið að æfa þar, kominn tími til. Byrjar þetta með látum hjá okkur næstu helgi og munum við spila æfingaleik við Breiðablik, alls 10 lið eða um það bil. Munum við spila þessa leiki á föstudaginn í Egilshöllinni á milli 14:45-17:00 og á Gervigrasinu í Árbænum á sunnudaginn kl 11:15-13:30. Við munum skipta hópnum upp í 10-12 lið og setja þau inn á bloggið. Þar mun koma fram hvenær hverjir eiga að mæta og hvar.

Dagskrá:

Mánudagurinn 30.jan, Egilshöll (inni)
U12 kl 16:00-17:30

Þriðjudagurinn 1.feb, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:50-16:20

Föstudagurinn 4.feb, Egilshöll (inni) ÆFINGALEIKIR
Þeir eiga bara að mæta sem verða í liðunum sem eiga að spila á þessum degi en það verður frí hjá hinum.

Sunnudagurinn 6.feb, Gervigrasið í Árbænum (úti) ÆFINGALEIKIR
Þeir sem að spiluðu á föstudaginn eiga ekki að mæta.


Með kveðju
Teddi og Hólmar

sunnudagur, janúar 30, 2005

Því miður verður ekki æfing í dag, völlurinn opnar ekki fyrr en á morgun.

Æfingar:

Sunnudaginn 30.jan, Gervigrasið í Árbæ (Fellur niður)

Mánudagurinn 30.jan, Egilshöll (inni)
U12 kl 16:00-17:30

Þriðjudagurinn 1.feb, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:50-16:20


Með kveðju
Teddi og Hólmar

fimmtudagur, janúar 27, 2005

Vikan hjá okkur........ 

Jæja strákar

Vonandi getum við verið með æfingu á sunnudaginn á Gervigrasinu í Árbæ. Ef að þessi hlýindi halda áfram þá er það góður möguleiki að það verði æfing á sunnudaginn.
Um daginn tókum við þolpróf á strákunum til þess að sjá hvar við værum staddir í þeim málum. Kom U12 betur út úr þessum prófum og erum við að reyna að vinna í þessum málum með U11 og U12, það er alltaf hægt að gera betur.
Stráka muna eftir því að fara að sofa fyrir kl 22:00 og ef að það er erfitt að sofna þá er gott að fá sér góða bók til að lesa. Munið að það er bara einn nammidagur á viku og það á að drekka mjólk og taka lýsi. Fiskur, kartöflur og grænmeti er mjög gott fyrir ykkur ef að þið viljið verða sterkir. Skólinn er mikilvægur og það er gott að vera skipulagður t.d. ef að það er æfing daginn eftir þá á að taka til fótboltadótið sitt kvöldið áður um leið og skóladótið.


Munið að æfingin skapar meistarann....................


Föstudagurinn 28.jan, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:45-16:10
U12 kl 15:45-17:10

Sunnudaginn 30.jan, Gervigrasið í Árbæ (SPILAÆFING)
Fylgist vel með blogginu um það hvort að völlurinn sé í lagi eða ekki.
U11 kl 11:15-12:40
U12 kl 12:15-13:40

Mánudagurinn 30.jan, Egilshöll (inni)
U12 kl 16:00-17:30

Þriðjudagurinn 1.feb, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:50-16:20


Með kveðju
Teddi og Hólmar


fimmtudagur, janúar 20, 2005

Framundan er ......... 

Jæja strákar

Nú er það að lesa vel um helgina því að PRÓFIÐ verður á sunnudaginn.


Föstudagurinn 21.jan, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:45-16:10
U12 kl 15:45-17:10

Sunnudagurinn 23.jan, Hátíðarsalur Fjölnis Dalhús 2.hæð
Próf og leikir.
kl 12:00-13:30 (koma með skriffæri, blýant, strokleður og yddara)

Mánudagurinn 24.jan, Egilshöll (inni)
U12 kl 16:00-17:30

Þriðjudagurinn 25.jan, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:45-16:20


Með kveðju
Teddi og Hólmar

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Allir að mæta á svæðið........... 

Herrakvöld Fjölnis 21. janúar

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra er heiðursgestur og ræðumaður kvöldsins.
Árni Johnsen stjórnar fjöldasöng af sinni allkunnri snild.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma kemur á svæðið eins og vanalega.
Siggi Hall sér um Þorramatinn, flott er það.

Forsala miða: Loftur 825-7747, Jóhann 660-4527, Ingi Pétur 892-6718, Júlíus 663-8080, Kristinn 898-0118, Birgir 895-9844 og Jón 862-6763. Einnig Verslunin Smíðabær Hverafold og Skrifstofa Fjölnis 567-2085.

Ath: takmarkaður fjöldi gesta
(síðast seldust miðar upp 2 dögum fyrir herrakvöldið og komust mun færri að en vildu).

Miðaverð í forsölu: 3.500,- (TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA)
Miðaverð við inngang: 4.000,-
Íþróttamiðstöðinni Dalhúsum föstudaginn 21.janúar 2005 (Bóndadaginn)

Húsið opnar kl. 19:00

Veislustjóri Eggert Skúlason

Með von um að sjá sem flesta


kveðja Teddi og Hólmar


fimmtudagur, janúar 13, 2005

Á næstunni........ 

Jæja gott fólk

Ekki hefur veðrið leikið við okkur það sem er af Janúarmánuði en sem betur fer erum við með 2 140 min í Egilshöllinni í hverri viku. Ég vill minna ykkur á Herrakvöld Fjölnis sem verður haldið þann 21.janúar í íþróttahúsi Fjölnis við Dalhús og hægt er að kaupa miða á skrifstofu Fjölnis.

Æfingar:

Föstudagurinn 14.jan, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:45-16:10
U12 kl 15:45-17:10

Sunnudagurinn 16.jan, Gervigrasið í Árbænum (FELLUR NIÐUR) en..............

Á sunnudaginn næstkomandi er hugsunin að fara með strákanna á skauta í Egilshöllina. Eins og að þið vitið þá er veðrið og aðstæður á vellinum upp í Árbæ ekki upp á marga fiska því var þessi ákvörðun tekinn af okkur þjálfurum að gera eitthvað skemmtilegt með strákunum.

Dagskráin er á þessa leið:

Kl 12:50 Mæting upp í Egilshöll með 600.- kr, sama verð þó að þið eigið skauta.
Kl 13:00 Þegar að allir eru búnir að borga þá fara þeir sem vantar skauta og ná sér í þá en hinir fara að gera sig klára.
Kl 14:15 Allir af svellinu og ganga frá skautunum á sinn stað.
Kl 14:30 Farið niður í Sportbita og borðað þar pylsu sem verður skoluð niður með Frissa fríska
Kl 15:00 Öllu lokið og farið verður heim eftir skemmtilegan dag.

Mánudaginn 17.jan, Egilshöll (inni)
U12 kl 16:00-17:20

Þriðjudagurinn 18.jan, Egilshöll (inni)
U11 kl 14:50-16:20


Með kveðju
Teddi og Hólmar

mánudagur, janúar 10, 2005

Framundan er....... 

Jæja strákar

Það voru 65 strákar sem mættu á fundinn síðasta sunnudag úr U11 og U12. Þessi fundur var til þess að fara yfir blað sem að á að hjálpa ykkur til þess að skilja hvað á að gera í hvaða stöðu sem er á vellinum. það er ekki nóg að vita hvað varnarmaður á að gera heldur verður maður að skilja hvað meðspilararnir eru að gera. Svo verður tekið PRÓF úr þessu blaði og þið látnir leysa mismunandi verkefni en það kemur síðar, þannig að lesa blaðið og EKKI týna því.

Æfingarnar:

Mánudagurinn 10.jan, Egilshöll (inni)
U12 kl. 15:45-17:10

Þriðjudagurinn 11.jan, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10

Föstudagurinn 14.jan, Egilshöll (inni)
U11 kl. 14:45-16:10
U12 kl. 15:45-17:10

Sunnudagurinn 16.jan
Nánar síðar


Með kveðju
Teddi og Hólmar

föstudagur, janúar 07, 2005

Æfingin fellur niður á sunnudaginn en......... 

Jæja strákar

Æfingin fellur niður á sunnudaginn vegna lélegs ástands á vellinum. Hann er frosinn og því miður ekki hægt að vera með æfingu. Þetta er því miður eitthvað sem að við ráðum ekkert við.

En í staðinn ætlum við að vera með smá fund með strákunum í U11 og U12 á sunnudaginn kl 11:00 í Hátíðarsal Fjölnis á 2.hæð í Dalhúsum. Fundurinn verður svo búinn ca. kl 12:30.

p.s. látið þetta berast ykkar á milli.


Með kveðju
Teddi og Hólmar

fimmtudagur, janúar 06, 2005

Æfingar næstu daga........ 

Þær verða sem hér segir:

Föstudagurinn 7.jan, Egilshöll
U12 kl 14:30-17:10 (æfingaleikur vs. Hauka)
Þarna er frí hjá U11 vegna æfingaleikjar við Hauka. Eins og við munum þá spiluðu U11 æfingaleik við Aftureldingu fyrir jól og nú er komið að U12.

Sunnudagurinn 9.jan, Gervigrasið í Árbænum
Koma vel klæddir, með húfu og vettlinga (skylda)
U11 kl 11:15-12:30 (byrjar kl 11:30)
U12 kl 12:15-13:30 (byrjar kl 12:30)

Framhald nánar síðar


Með kveðju
Teddi og Hólmar

mánudagur, janúar 03, 2005

Æfingar hefjast í dag og á morgun 

Jæja strákar

Æfingarnar hefjast aftur í dag og á morgun hjá 5.flokki karla.


Mánudagurinn 3.jan, Egilshöll
U12 kl 15:45-17:10

Þriðjudagurinn 4.jan, Egilshöll
U11 kl 14:45-16:10


Fleiri æfingar, nánar síðar.


Kveðja
Teddi og Hólmar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?