<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, desember 22, 2003

Jólamót KRR................. 

Þegar að iðkanndi kemur fram fyrir hönd félagsins í mótum þá leggjum við mikla áherslu á að hann sé í gulum stuttbuxum, gulum sokkum og með legghlífar. Ég vildi minna ykkur á þetta fyrir Jólamót KRR sem fer fram í Egilshöllinni þann 27.desember 2003 hjá 5.flokki drengja U11 og U12.


Um leið vill ég óska ykkur öllum


Gleðilegra jóla og farsælt komandi ár

og ég þakka ykkur fyrir samverustundirnar

á liðnu ári og hlakka til þeirra á næsta ári.



Með kveðju Teddi

Foreldrahandbók.......................... 

Hér eru nokkur atriði sem að við sem foreldrar getum skoðað og haft að leiðarljósi sem fyrirmyndir barnanna.

Meðal efnis eru jafnan eftirfarandi heilræði eða ráðleggingar til foreldra sem óhætt er að fara yfir reglulega:

Hvetjið börnin til þátttöku.
- ekki þvinga þau, ánægja þeirra og áhugi er það sem máli skiptir.
Mætið á leiki.
- það hvetur og uppörvar börnin að finna fyrir áhuga ykkar.

Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans.
- ekki reyna að hafa áhrif á hann meðan á leik eða æfingu stendur og látið hann um þjálfunina, leikstjórnunina og um að velja í liðin. Ekki hrópa og kalla á ykkar börn í leikjum, það truflar einbeitingu þeirra og gerir þau taugaóstyrk.

Hvetjið liðið í heild.
- ekki bara ykkar börn.
Látið aðeins jákvæð og hvetjandi orð frá ykkur fara á meðan leikur stendur.
- þetta er bara leikur og ánægjan yfir því að taka þátt er númer eitt.
Hafið hvatninguna einfalda og almenna.
- ekki reyna að fjarstýra börnunum frá hliðarlínunni, það ruglar þau bara.
Stuðlið að jákvæðum samskiptum við foreldra frá öðrum félögum.
- rígur og metingur eiga ekki heima á þessum vettvangi.
Sýnið ekki mótherjum barnanna ykkar neikvætt viðhorf.
- gagnkvæm virðing og kurteisi er hinn sanni íþróttaandi.
Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs.
- ekki gagnrýna þegar illa gengur. Hvetjið þau og uppörvið eftir tapleiki og klappið fyrir þeim þótt leikurinn hafi ekki unnist.
Keppnisdagur er alltaf hátíðisdagur.
- sama hvernig leikurinn fer, látum óhagstæð úrslit ekki spilla fyrir því.
Lítið á dómarann sem leiðbeinanda barnanna.
- ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
Spyrjið hvort leikurinn hafi verið skemmtilegur eða spennandi.
- úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
Sýnið starfi félagsins virðingu.
- verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um starfsemina, þar er ykkar vettvangur.
Athugið hvort þið getið orðið að liði á einhvern hátt.
- það eru foreldrar sem sjá um alla starfsemina í yngri flokkunum og þeir gætu þurft hjálparhönd - margar hendur gera verkið auðvelt.
Gerið ykkur grein fyrir því að það eru börnin ykkar sem eru að spila fótbolta.
- ekki þið sjálf!

Með kveðju Teddi

sunnudagur, desember 21, 2003

MUNIÐ EFTIR............ 

Jólamótið er 27.desember í Egilshöll

og fyrsta æfinginn eftir jól er 6.janúar 2004

Þriðjudagurinn 6.janúar í Egilshöll

U12 kl 14:50-16:00
U11 kl 15:50-17:00

Kveðja Teddi


laugardagur, desember 20, 2003

Næsta æfing er ............. 

Næsta æfing er á sunnudaginn hjá U11 í Dalhúsum en U12 eru komnir í jólafrí, nema þeir sem eru í hópnum sem voru valdir fyrir íslandsmótið innanhús.

Sunnudagur 21.desember hjá U11

Hópur no 10 kl 12:20 - 13:10
Hópur no 11 kl 13:10 - 14:00

Sunnudagur 21.desember hjá U12, hópnum sem var valinn fyrir íslandsmótið innanhús

kl 14:00-15:40


kveðja Teddi

föstudagur, desember 19, 2003

Smá breytingar voru gerðar á ............ 

Jæja gott fólk

það voru gerða smá breytingar á liðunum og vegna mistaka. Þið getið sparað ykkur símtölin liðunum verður ekki breytt. Liðin eru svona af mörgum ástæðum, sum lið er ég að styrkja aðra leikmenn er ég að prófa í öðrum liðum osfv. Ef strákarnir geta ekki tekið á smá mótlæti núna þá eru þeir í frekar slæmum málum ef þeir ætla sér að stunda fótbolta áfram.

Nú er bara að vona að allir séu búnir að borga æfingargjöldinn.


Með kveðju Teddi

fimmtudagur, desember 18, 2003

Hér koma liðinn sem spila í riðli 4............. 

4 riðill A
Mæting kl 13:30 búinn kl 15:30


Arnar Freyr Dagbjartsson
Arthur Möller
Daníel Atlason
Finnbogi Rútur Finnbogason
Halldór Atlason GK
Hallgrímur Andri Jóhannsson
Hannes Snorrason
Kristján Svanur Eymundsson


4 riðill B
Mæting kl 13:45 búinn kl 15:45


Bjarki Pétursson
Halldór Atlason GK
Jón Snær Jónsson
Kristján Finnsson
Kristmundur A. Kristmundsson
Oliver Steinar Jónsson
Snæbjörn
Stefán Alexis Sigurðsson

Þau nöfn sem eru feitletruð, það eru fyrirliðar liðanna.

Hér koma liðinn sem spila í riðli 3............. 

3 riðill A
Mæting kl 13:30 búinn kl 15:30


Albert Guðlaugsson
Arnar Freyr Ólafsson GK
Birgir Atli Birgisson
Davíd Jan Guðmundsson
Elmar Guðlaugsson
Guðmar Ingi Finnbogason
Jón Kjartan Jónsson
Kjartan Ernir
Svavar Guðjónsson

3 riðill B
Mæting kl 13:45 búinn kl 15:45


Gísli Björgvin Pálsson
Guðjón Kristjánsson
Hilmar Björn Óskarsson
Hlynur Logi Þorsteinsson GK
Hörður Aron Hauksson
Kristinn Birkisson
Ómar Óskarsson
Sigvaldi Sigurðarson
Sveinn Skúli Pálsoon


3 riðill C
Mæting kl 15:00 búinn kl 17:00


Brynjar Karl Sigurðsson
Davíð Már hauksson
Egill Fannar Halldórsson
Gunnar Emil Eggertsson
Gunnlaugur Skarphéðinsson
Magnús Mar Arnarsson
Stefán Örn Snæbjörnsson
Þórður Ingi Johnsen
Þórir Finnbogason


3 riðill D
Mæting kl 15:15 búinn kl 17:15


Alfreð Ragnar Grétarsson
Brynjar Óli Ólafsson
Grétar Atli Davíðsson
Lars D. Gunnarsson
Alfreð Kárason
Fannar Örn Arnarsson
Jón Hilmar
Sveinn Ó. Ágústsson

Þau nöfn sem eru feitletruð, það eru fyrirliðar liðanna.


Hér koma liðinn sem spila í riðli 2............. 

2 riðill A
Mæting kl 8:30 búinn kl 11:00


Andri Snær Helgason
Baldvin Þór Gestsson
Hannes Halldórsson
Henrý Guðmundsson
Hlynur Árni Sigurjónsson
Jóhann Óli Þórbjörnsson
Kristinn Örn Valdimarsson
Leifur Kristjánsson GK
Róbert Steinar Hjálmarsson


2 riðill B
Mæting kl 8:45 búinn kl 11:15


Bjarmi Rósmannson GK
Einar Ívarsson
Einar Leó Jóhannsson
Gauti Gunnlaugsson
Ingólfur Páll Ingólfsson
Ólafur Barði Guðmundsson
Pálmi Már Heiðberg
Ríkarður Már Ellertsson
Sævar Þór Sigfússon


2 riðill C
Mæting kl 11:00 búinn kl 13:30


Andri Þór Sveinsson
Atli Freyr Arason
Ágúst Guðmundur Ágústsson
Davíð Andri Bragason
Friðrik Atli Guðmundsson
Hinrik Pétursson
Jón Arinbjörn Einarsson GK
Sigurjón Björn Grétarsson
Viktor Páll Svavarsson


2 riðill D
Mæting kl 11:15 búinn kl 13:45


Arnór Jónsson
Aron Freyr Kristjánsson
Guðjón Daníel Jónsson
Gunnar Smári Jónsson
Hilmar Ragnarsson
Kristófer Leó Harðarson
Kristófer Logi GK
Sindri Már Jónsson
Steinn Ingi Árnason

Þau nöfn sem eru feitletruð, það eru fyrirliðar liðanna.

Hér koma liðinn sem spila í riðli 1........... 

Núna byrja ég að setja liðin inn fyrir Jólamót KRR og byrja á riðli 1


1 riðill A
Mæting kl 8:30 búinn kl 11:00

Bergsveinn Ólafsson
Guðfinnur Magnússon
Guðmundur J Arngrímss GK
Gunnar Alexander Sigurbjörnss
Páll Dagbjartsson
Reynir Már Sveinsson
Rúnar Sigmundsson
Styrmir Árnason


1 riðill B
Mæting kl 8:45 búinn kl 11:15


Arnar Bjarki Jónsson
Hafþór Hákonarson
Halldór Ragnarsson
Hringur Daðason
Ívar Örn Kárason
Jón Viðar Hreinsson GK
Pétur Andri Pétursson
Sverrir Ásbjörnsson

1 riðill C
Mæting kl 11:00 búinn kl 13:30


Andri Bergsson
Aron Sigurðsson
Bjarni Gunnarsson
Freyr Heiðarsson
Guðmundur Júlíusson
Hrólfur Vilhjálmsson GK
Júlíus Orri Óskarsson
Ólafur Árni Hall
Sverrir Ingi Ólafsson

1 riðill D
Mæting kl 11:15 búinn kl 13:45


Ágúst Snorri Guðbergsson
Ágúst Örn Ágústsson
Eiríkur Haraldsson
Hlynur Freyr Harrysson GK
Ingi Björn Grétarsson
Kjartan Freyr Kjartansson
Sigurður Lárus Sigurðsson
Sölvi Borgar Sveinsson
Þorvaldur Freyr Traustas

Þau nöfn sem eru feitletruð, það eru fyrirliðar liðanna.


miðvikudagur, desember 17, 2003

Jóladagskrá...................... 

Jóladagskrá 5. flokks drengja U11 & U12

19. desember
Síðasta æfinginn hjá U12 fyrir jól.

21. desember
Síðasta æfinginn hjá U11 fyrir jól.

22. desember
Æfing hjá hópnum sem var valin fyrir Íslandsmótið innanhús í Dalhúsum kl 13.00-15.00.

23. desember
Enginn æfing.

24. desember
Gleðileg Jól

27. desember
Mót í Egilshöllinni, mæting eftir plani.

6. janúar 2004 (þriðjudagur)
Fyrsta æfing eftir jólafrí í Egilshöllinni
U12 kl 14:50-16:00
U11 kl 15:50-17:00


Með jólakveðju
Teddi og Tóti


þriðjudagur, desember 16, 2003

Næsta Æfing ................................ 

Blessaðir strákar næsta æfing er:

Fyrir U12 á fimmtudaginn í Dalhúsum
kl 15:10 - 16:00, allir nema hópurinn sem var valinn fyrir Íslandsmótið innanhús.
kl 16.00 - 16.50, hópurinn sem var valinn fyrir Íslandsmótið innanhús.

Fyrir U11 & U12 á föstudaginn í Egilshöllinni
kl 14:50 - 16.00, allir.

Mæta í gulum sokkum, gullum stuttbuxum og með legghlífar.


Með kveðju Teddi

mánudagur, desember 15, 2003

Næsta æfing ................................... 

Næsta æfing er á þriðjudaginn hjá U11 og U12

U11 kl 14:50 - 16:00 í Egilshöllinni
U12 kl 15:40 - 17:00 í Egilshöllinni

Mikil áhersla er lögð á það að strákarnir mæti í gulum stuttbuxum, gulum sokkum og með legghlífar.

Mjög bráðlega verður jóladagskráin komin á netið.

Með kveðju Teddi

laugardagur, desember 13, 2003

Nýtt hotmail...................... 

Blessaðir strákar

Það er komið nýtt hotmail svo að samræður á milli strákanna í flokknum geti farið fram.

Fyrir U11 er það U11karla@hotmail.com
Fyrir U12 er það U12karla@hotmail.com

Endilega setjið ykkur inn á rétt hotmail og endilega notið ykkar rétta nafn. Þetta er svo að það sé hægt að ræða saman strákar á sama aldri.


kveðja Teddi

Næsta æfing hjá U11 er.................. 

Næsta æfing hjá U11 er á sunnudaginn í Dalhúsum

Hópur no 10 kl 12:20 - 13:10
Hópur no 11 kl 13:10 - 14:00


Með kveðju Teddi

föstudagur, desember 12, 2003

Hópurinn sem er valinn................ 

Hópurinn sem er valinn fyrir Íslandsmótið innanhús. Að velja svona hóp er mjög erfitt, þeir sem eru valdir í hópinn eiga að mæta á sunnudaginn kl 8:50 í Dalhús og verða þar á æfingu til kl 10:40. Æfingin er lokuð fyrir foreldra.

Hópurinn er eftirfarandi:

Andri Snær Helgason
Arnar Bjarki Jónsson
Baldvin Þór Gestsson
Bergsveinn Ólafsson
Guðfinnur Magnússon
Gunnar Alexander Sigurbjörnss
Hannes Halldórsson
Henrý Guðmundsson
Hlynur Árni Sigurjónsson
Jóhann Óli Þórbjörnsson
Kristinn Örn Valdimarsson
Leifur Kristjánsson
Ólafur Barði Guðmundsson
Páll Dagbjartsson
Reynir Már Sveinsson
Róbert Steinar Hjálmarsson
Rúnar Sigmundsson
Styrmir Árnason


Með kveðju

Teddi þjálfari

fimmtudagur, desember 11, 2003

Munið að .................................. 

Strákar munið að setja skóinn út í glugga því Stekkjastaur kemur á morgun.


Kveðja Teddi

Næsta æfing......................... 

Jæja strákar í U12 það var góð æfing hjá ykkur í dag og munið hafa hausinn í lagi.

Næsta æfing er kl 14:50 í Egilshöllinni hjá U11 og U12, henni líkur kl 16:10 og það verður spilað allan tímann.


Með kveðju Teddi

þriðjudagur, desember 09, 2003

Næsta æfing er....................... 

Hjá U12 á fimmtudaginn hjá hópi:

No 10 kl 15:10-16:00 í Dalhúsum.
No 11 kl 16:00-16:50 í Dalhúsum.

Hjá U11 á föstudaginn kl 15:00-16:00 í Egilshöllinni.


Með kveðju Teddi

Undirgönginn.................. 

Ég ætla að ítreka fyrir iðkenndum og biðja foreldra að brýna fyrir sínum börnum um að nota UNDIRGÖNGINN þegar að æfingar eru í Egilshöllinni. Vegna þess að maður hefur séð það alltof oft að krakkar eru að skjóta sér á milli bílanna og þetta er stór hættulegt.


Með kveðju Teddi

mánudagur, desember 08, 2003

Æfingargjöld............. 

Frá formanni BUR.

Vinsamlegast, athugið:

Þáttökurétt í Jólamóti KRR, hafa þeir einir, sem hafa greitt æfingagjöldin.


Kveðja,
f.h. BUR
Snorri Snorrason

Bráðum verður valinn hópur fyrir Íslandsmótið innanhús. 

Bráðurm verður valinn 12-14 manna hópur fyrir Íslandsmótið innanhús. Það er alltaf erfitt að velja lítinn hóp úr eins stórum hópi iðkennda sem að við höfum. En það er víst bara 1 lið sem að við fáum eins og öll önnur lið á landinu og inná vellinum eru bara 5 spilarar. Þeir sem verða valdir geta búist við því að fá lítið sem ekkert að spila en hópurinn sem verður valinn fer á séræfingar vegna mótsins.

Með kveðju Teddi

Næsta æfing er: 

Þriðjudaginn

kl 14:50-16:00 U11 í Egilshöllinni
kl 16:00-17:00 U12 í Egilshöllinni


Með kveðju Teddi

Umsögn um bíóferðina frá iðkannda 

Fimmtudaginn 4.desember fórum við 5.flokkur karla yngra ár í bíó að sjá myndina Leitin að NEMO, ákveðið var að fara í bíó kl. 16:50og var farið í Kringlubíó.
Það var mjög gaman í þessari ferð. Mér fannst myndin góð, við fengum popp og það sem við vildum að drekka. Myndin var mjög fyndin td. þegar hann spurði skjaldbökuna hvað hún væri gömul og hún svaraði 150 ára rokkar feitt maður, það var líka fyndið þegar Nemo sagði við litla bláa fiskinn (man ekki hvað hann heitir) fyrirgefðu ég heiti Nemo og ég er að leita að pabba mínum, þá sagði litli blái fiskurinn, hhummm Nemo, flott nafn. Hún (litli blái fiskurinn) mundi ekki að hún hefði verið að leita að Nemo með pabba hans, þá leit hún á holræsisrör sem stóð á Sidney, þá mundi litli blái fiskurinn að hún hafi verið að leita að Nemo, hún lét hann elta sig til pabba hans.
Loksins eftir smá stund fundu þau hann, hann var inni í fiskahóp,þar var fiskibátur sem lagði net fyrir fiskana, litli blái fiskurinn lenti í netinu.Nemo og pabbi hans sögðu öllum fiskunum sem voru í netinu að synda niður allir í einu og þá myndu þeir losna .
Svo fórum við á McDonald´s og fengum hamborgara eða nagga...við fengum líka spræt,coke eða fanta Þetta var skemmtilegur dagur. :-)

Lars Davíð Gunnarsson

þriðjudagur, desember 02, 2003

Kæru félagar

Tóti sá um æfinguna í Egilshöllinni á þriðjudaginn og var ástæðan sú að ég var á seinni hluta af skyndihjálparnámskeiði í vinnunni minni í Rimaskóla. Þetta eru námskeið sem að ég mæli að fólk fari á vegna þess að maður veit aldrei hvenær maður þarf að nota það sem að maður lærir á þessum námskeiðum en að sjálfsögðu vonar maður að maður þurfi aldrei að nota það.

kveðja Teddi

Næsta æfing hjá U12 verður á fimmtudaginn kl 15:10-16:00 hjá hópi no 10
og hjá hópi no 11 kl 16:00-16:50

Á föstudaginn verður æfing hjá U11 og U12 í Egilshöllinni kl 14:50-16:00


Með kveðju Teddi

Hér kemur tilkynning frá foreldraráðinu hjá U11

Fimmtudaginn 4. desember ætlum við í U11 að fá okkur að borða og fara í bíó.

Farið verður á McDonalds og horft á myndina Leitin að Nemo.
Mæting á Stjörnutorg í Kringlunni kl. 17.15 og áætluð heimferð 19.40

Foreldrar sameinumst um að koma strákunum fram og til baka.

Strákarnir mæti með kr. 500

Áfram Fjölnir.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?