<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, janúar 30, 2004

Þetta fékk ég sent ............. 

Fótbolti er frábær íþrótt
Fátt er betra en hún,
Erfiðar alveg út í eitt
og menn sig geta alltaf meitt

Höfundur
Hannes Halldórsson :)


Næstu æfingar ............ 

Blessaðir strákar

Eins og þið vitið þá er ég búinn að vera á Reykjum í Hrútafirði með 7. bekk úr Rimaskóla. En ég veit að það hefur verið vel hugsað um ykkur en ég kem heim í dag föstudag.

Æfingin fellur niður í dag föstudag vegna móts í Egilshöllinni.

Æfingin á sunnudaginn hjá U11 fer fram á Gerfigrasinu í Laugardal kl 10.00 og verður til kl 11.30 (spil) vegna þess að Dalhús er lokað vegna móts og þess vegna verðum við aðfæra æfinguna.

kveðja Teddi

sunnudagur, janúar 25, 2004

4.flokkur karla 

4.flokkur karla sem að við lánuðum innanhústímanna á fimmtudaginn spilaði í Íslandsmótinu innanhús á laugardaginn síðastliðinn og stóðu þeir sig mjög vel. Þeir spiluðu við Hauka, Umf Bessastaða, HK, Skallagrím og Leikni, þeir unnu alla leikina nema 1 og eru þar af leiðandi komnir í 8 liða úrslit á Íslandsmótinu innanhús eins og við í 5.flokki.

Tli hamingju strákar í 4.flokki karla, flott hjá ykkur og það verður gaman að fylgjast með framhaldinu.


Með kveðju Teddi

Næsta æfing er ........................... 

Æfingar í næstu viku eru eftirfarandi:

Þriðjudag
U12 kl 14:50-16:10 í Egilshöll
U11 kl 15:50-17:10 í Egilshöll

Fimmtudag (bara hjá U12)
Hópur 10 kl 15:10-16:00 í Dalhúsum
Hópur 11 kl 16:00-16:50 í Dalhúsum

Föstudag
U11 og U12 kl 14:50-16:10 í Egilshöllinni

Sunnudag (bara hjá U11)
Nánar síðar, fylgjast vel með síðunni.


Með kveðju Teddi

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Næsta æfing er ....................... 

Hjá öllum föstudaginn 23.jan í Egilshöllinni kl 14:50-16:10


Með kveðju Teddi

Æfingar falla niður ................ 

Innanhúsæfingarnar á fimmtudaginn 22.jan hjá U12 og á sunnudaginn 25.jan hjá U11 falla niður í þessari viku.

Æfinginn fellur niður hjá U12 á fimmtudaginn vegna undirbúnings hjá 4. flokki fyrir Íslandsmótið innanhús og við sem sannir Fjölnismenn aðstoðum þegar að við getum, er kallið kemur.

Æfinginn fellur niður hjá U11 á sunnudaginn vegna móts í húsinu eftir hádegi.

Tökum þessu með jákvæðni og stöndum saman Fjölnismenn allir sem einn.


Með kveðju Teddi

mánudagur, janúar 19, 2004

Næsta æfing er .................... 

Næsta æfing er á þriðjudaginn hjá 5. flokki.

U12 kl 14:50-16:10 í Egilshöllinni
U11 kl 15:50-17:10 í Egilshöllinni

Um leið vill ég minna foreldra á FORELDRAFUNDINN í kvöld kl 20:00 í hátíðarsal Fjölnis við Dalhús.


Með kveðju Teddi

sunnudagur, janúar 18, 2004

Leikirnir í morgun............... 

Hér kemur staðan í riðlinum og úrslit leikja hjá strákunum sem spiluðu fyrir hönd 5. flokks drengja í morgun. Allir stóðu þeir sig vel, sama hversu mikið þeir spiluðu og voru þeir allir félaginu til sóma, ekki síst þeir sem voru ekki valdir í hópinn en mættu samt og hvöttu strákanna áfram. Flott hjá ykkur.


Íslandsmót innanhúss - 5. flokkur karla F
Innimót - 5. flokkur ka. F, 2004- Karlar



Félag L U J T Mörk Net Stig
1 Fjölnir 3 3 0 0 10 : 1 9 9
2 FH 3 1 1 1 9 : 3 6 4
3 Breiðablik 3 0 2 1 2 : 3 -1 2
4 KFR 3 0 1 2 1 : 15 -14 1




Umferðarröð
Leikir
1 sun. 18. jan. 2004 - 09:30 Breiðablik - FH Kaplakriki 1-1
2 sun. 18. jan. 2004 - 09:45 Fjölnir - KFR Kaplakriki 7-0
3 sun. 18. jan. 2004 - 10:10 FH - KFR Kaplakriki 7-0
4 sun. 18. jan. 2004 - 10:25 Breiðablik - Fjölnir Kaplakriki 0-1
5 sun. 18. jan. 2004 - 10:50 Fjölnir - FH Kaplakriki 2-1

6 sun. 18. jan. 2004 - 11:05 KFR - Breiðablik Kaplakriki 1-1

Fjöldi leikja: 6

Með kveðju Teddi


föstudagur, janúar 16, 2004

Breyting á æfingum um helgina hjá 5. flokki (U11) 

Það eru smá breytingar á æfingum hjá 5.flokki drengja núna um helgina eða 17.-18. janúar. Æfingin í Dalhúsunum færist hjá U11 af sunnudeginum 18. janúar og verður hún í Dalhúsum laugardaginn 17. janúar í staðinn.

Og verða æfingarnar eins og hér segir:

Laugardagur 17. jan U11
Hópur no 10 kl 16:30-17:30
Hópur no 11 kl 17:30-18:30

Laugardagur 17. jan U12
Loka æfing hjá hópnum sem tekur
þátt í Íslandsmótinu innanhús.
kl 18:30-19:30 í Dalhúsum

Sunnudagur 18. jan U12
Íslandsmótshópurinn á að mæta
í Kaplakrika kl 08:30

Sunnudagur 18. jan U11
Æfing fellur niður vegna móts
hjá 2.fl.karla


Munið eftir foreldrafundinum sem verður haldinn í hátíðarsal Fjölnis mánudaginn 19. janúar kl 20:00 og þá er hægt að skila skráningarblaðinu fyrir Goðamótið sem er helgina 12.-14. mars á Akureyri.


Með kveðju Teddi

fimmtudagur, janúar 15, 2004

Hópurinn fyrir Íslandsmótið innanhús er ........... 

Jæja þá er komið að því að tilkynna hópinn fyrir Íslandsmótið innanhús sem fer fram næstkomandi sunnudag. Mótið fer fram í Kaplakrika hjá FH-ingum að þessu sinni og þar spilum við á móti KFR, Breiðablik og FH í þessari röð. Að velja svona hóp er ekki mjög létt vegna þess að við erum með marga hæfileikaríka einstaklinga hjá okkur í 5. flokki þetta árið en það varð að velja hópinn og ég gerði það. Þeir sem spila innanhúsbolta vel eru þeir sem eru með góðar móttökur, eru útsjónarsamir og vinnusamir og það hafði ég að leiðarljósi þegar að ég valdi í hópinn.

En þeir sem voru valdir eru:

Bergsveinn Ólafsson
Guðfinnur Magnússon
Gunnar Alexander Sigurbjörnsson
Henrý Guðmundsson
Hlynur Árni Sigurjónsson
Kolbeinn Þorbergsson GK
Kristinn Örn Valdimarsson
Leifur Kristjánsson GK
Páll Dagbjartsson Capt
Reynir Már Sveinsson
Rúnar Sigmundsson
Styrmir Árnason


Liðstjóri:
Jóhann Óli Þorbjörnsson


Mæting er kl 08:30 og komið með ykkur ávöxt, þetta er búið kl 11:20.

Til foreldra:
Eins og ég er búinn að gera strákunum grein fyrir þá er ekki víst að allir spili og bið ég ykkur að virða þá ákvörðun.


Með kveðju Teddi

miðvikudagur, janúar 14, 2004

Næsta æfing er ........................ 

Næsta æfing hjá öllum er á föstudaginn 16. janúar

kl 14:50-16:10 í Egilshöllinni

Með kveðja Teddi

Á dagskrá á næstunni........... 

5. flokkur drengja
Goðamót Þórs á Akureyri!


Foreldrafundur fyrir 5.flokk drengja verður haldinn mánudaginn 19. janúar kl 20:00 í hátíðasal Fjölnis í íþróttahúsinu við Dalhús. Umræðuefni verður Goðamót Þórs ferðatilhögun, hvernig verður farið, fararstjórar og allt sem snýr að framkvæmds svona móts og svo að sjálfsögðu verður rætt um ESSO-mótið sem að 5.flokkurinn fer á í sumar á AKUREYRI sem er haldið 30.júní-4.júlí.

EN MUNIÐ AÐ ENGINN FÆR AÐ TAKA ÞÁTT Í MÓTUM Á VEGUM FJÖLNIS EF HANN HEFUR EKKI GREITT ÆFINGAGJÖLD.

12.-14 mars árið 2004 mun knattspyrnudeild Þórs halda mót í knattspyrnu fyrir 5. flokk drengja. Mótið er haldið í samvinnu og með stuðningi Norðlenska undir nafninu Goðamót Þórs. Mótið munu hefjast á föstudegi kl. 15:00 og ljúka síðdegis á sunnudegi sem gerir það að verkum að drengirnir þurfa að fá frí í skólanum á föstudeginum 12.mars.
Spilaður verður 7-manna bolti A, B, C og D liða og allir leikir fara fram í Boganum, knattspyrnuhöllinni á Akureyri, hugsunin er að hafa 8-9 iðkenndur í liði.
Þátttökugjald verður ca. 6.500-7.500 kr. Innifalið í því verður m.a. keppnisgjald, gisting, sund, morgunmatur laugardag og sunnudag, kvöldmatur föstudag og laugardag, samlokur, drykkir og ávextir á milli leikja, svo grill á sunnudegi fyrir brottför auk glaðnings frá styrktaraðila.

Einnig er hægt að skrá sig á mótið á síðunni http://5flkarla.blogspot.com sjá linka hægra megin á síðunni. Yngra árið U11 notar linkinn U11 en eldra árið U12 notar linkinn U12. Þar þarf að koma fram sömu upplýsingar og beðið er um hér neðar á þessu blaði. Staðfesta þarf þáttökuna í síðasta lagi föstudaginn 16. janúar næstkomandi.

Þeir sem hafa áhuga sendið staðfestingu á E-mail kaehf@simnet.is eða ssrun@isholf.is
Það er samt áríðandi að allir foreldrar mæti á foreldrafundinn.

Nafn drengs: __________________________________________________________

Foreldri :___________________________________________________________

Sími/GSM: _____________________ Tölvupóstur:___________________________



FORELDRARÁÐ 5.FLOKKS

föstudagur, janúar 09, 2004

Næsta æfing er ............ 

Sunnudaginn 11. janúar

kl 09:00-10:40 Æfingaleikur við Fram
(hjá hópnum sem var valinn fyrir Íslandsm. innanhús)
Það er ekki víst að allir fái að spila jafn mikið. Lokuð æfing
og allir eiga að mæta í gulum sokkum, gulum stuttbuxum
og einnig með legghlífar.

kl 12:20-13:10 hópur no 10 hjá U11
kl 13:10-14:00 hópur no 11 hjá U11

Þriðjudagur 13. janúar

kl 14:50-16:10 allir í U12
kl 15.50-17:10 allir í U11
Þessir tímar gætu breyst aftur.


Með kveðju Teddi


miðvikudagur, janúar 07, 2004

Næstu æfingar ................ 

Fimmtudagur 8. janúar
U12 eftir plani
Hópur no 10 kl 15.10-16.00 í Dalhúsum
Hópur no 11 kl 16.00-16.50 í Dalhúsum

Föstudagur 9. janúar
U11 og U12 kl 14:50-16:15 í Egilshöllinni


Með kveðju Teddi

mánudagur, janúar 05, 2004

Frekar lélegt strákar ............................ 

Jæja strákar sem taka þátt í Íslandsmótinu innanhús.

Ég lagði smá próf fyrir ykkur. Ég er marg oft búin að segja ykkur að fylgjast með heimasíðunni ykkar en þið hafið greinilega ekki gert það. Ég setti óvænt upp æfingu fyrir ykkur á sunnudaginn síðasta þann 4. janúar kl 12:20-14:00. Viljið þið vita hvað það mættu margir á æfinguna ? Það voru 3 og 1 hringdi og sagðist ekki koma vegna þess að hann var að halda uppá afmælið sitt. En þeir sem mættu voru Jóhann Óli, Róbert og Hlynur og Hannes hringdi í mig. Þetta er ekki nógu gott strákar, ég verð að geta treyst því að þið fylgist með.


Með kveðju Teddi

föstudagur, janúar 02, 2004

Smá upprifjun ........... 

Jæja gott fólk og gleðilegt nýtt ár

Verkefni 3 síðustu mánuðina 2003 voru ekki mörg, en við fórum með U12 á 10-11 mótið í Keflavík sem var mjög glæsilegt og U11 spilaði 2 æfingaleiki.

U11 sem spila í B riðli næsta sumar, spiluðu á móti bæði U12 og U11 hjá Þrótti Rvk. Þar stóðu þeir sig ágætlega og þar gátum við metið stöðuna og séð í hverju við þyrftum að bæta okkur í.

U12 sem spilar í A riðlinum næsta sumar, spilaði í mótinu á móti liðum eins og ÍA, Keflavík, Njarðvík og Reynir Sandgerði allt lið sem við erum ekki vanir að spila á móti. Þar unnum við C liða og B liða keppnina í A úrslitum og B úrslitinn með B2 liðinu okkar, einnig urðum við í 2 sæti í D liðum osfrv. A liðið okkar lenti í 5 sæti en sýndi góð tilþrif á mótinu en það dugði ekki til.

Iðkenndur/foreldrar við þurfum að hafa það hugfast að enginn leikur/mót er unninn/unnið fyrirfram.

Verkefni næstu mánuðina eru nokkur og má þar helst nefna Íslandsmótið innanhús 18. janúar (Kaplakrika) og Reykjavíkurmót KRR í apríl/mars og svo bætast æfingaleikir við að sjálfsögðu. Síðan má búast við aukaæfingum úti sem verða boðaðar séstaklega hér á blogginu.


Umfjöllun um Jólamót KRR væntanleg.


Með kveðju Teddi

Næstu æfingar eru ......................... 

Sunnudagur 4. janúar
kl 12.20-14:00 í Dalhúsum
Liðið sem tekur þátt í Íslandsmótinu innanhús

Þriðjudagur 6. janúar
U12 kl 14:50-16:20 í Egilshöllinni
U11 kl 15:50-17:20 í Egilshöllinni

Fimmtudagur 8. janúar
U12 eftir plani
Hópur no 10 kl 15.10-16.00 í Dalhúsum
Hópur no 11 kl 16.00-16.50 í Dalhúsum

Föstudagur 9. janúar
U11 og U12 kl 14:50-16:15 í Egilshöllinni


Fleiri æfingar nánar síðar, fylgist vel með síðunni.


Með kveðju Teddi

This page is powered by Blogger. Isn't yours?