<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, september 28, 2006

Æfingar hefjast í næstu viku 

Æfingar hefjast hjá 5fl. á þriðjudag 3 okt. Í vetur fara allar æfingar fram í Egilshöll og verður strákunum skipt eftir aldri það er u11 (fæddir 1996) og u12 (fæddir 1995). Nýr þjálfari bætist í hópinn í vetur, hann heitir Elmar Hjaltalín og er íþróttakennari við Hamraskóla, hann hóf störf hjá Fjölni síðasta vetur og var þá þjálfari u13 og 7.flokks. Auk hans munu Gunnar Már og Daníel halda áfram sem þjálfarar eins og á síðasta vetri.

Æfingartaflan fyrir veturinn 2006 - 2007

U11
Þriðjudagar 15:00 - 16:10
Föstudagar 15:00 - 16:10
Laugardagar 08:30 - 09:30

U12
Þriðjudagar 16:10 - 17:20
Föstudagar 16:10 - 17:20
Laugardagar 08:30 - 09:30

Kveðja Elmar (695-8480) , Gunnar Már og Daníel

sunnudagur, september 03, 2006

Haustmót KRR hjá U-11 

Leikið verður á Leiknisvelli í Breiðholti og eru tvö lið sem spila á þriðjudaginn 5.Sep og önnur tvö sem spila á Laugardaginn 9.Sep

A-lið spilar þriðjudaginn 5.Sep mæting kl:16:30 eru búnir um Kl:19:30 spilað verður við KR,Fylki og Þrótt þeir sem eiga að mæta eru:Benni-Breki-Eggert-Sólon-Páll-Hilmar-Brynjar-Bogi-Jón Andri

B-lið spilar Þriðjudaginn 5.Sep mæting kl:17:00 eru búnir um kl:20:00 spilað verður við KR,Fylki og Þrótt þeir sem eiga að mæta eru:Björn-Sölvi-Eiríkur-Ingi-Andri-Sindri-Sigurjón-Jón Páls-Daniel Emil

A-1 lið spilar Laugardaginn 9.Sep mæting kl:09:30 eru búnir um kl:12:30 spilað verður við Fylki,Þrótt og Valur þeir sem eiga að mæta eru:Eðvarð-Steinar-Friðjón-Gísli-Sveinn-Hlynur-Ólafur-Kristján-Arnór Daði

B-1 lið spilar Laugardaginn 9.Sep mæting kl:10:00 eru búnir um kl:13:00 spilað verður við Fylki,Þrótt og ÍR þeir sem eiga að mæta eru:Arnór Rafn-Ófeigur-Bjarki-Jón Ómar-Axel-Arnþór-Kristófer-Olgeir-Hilmar Snær-Björn Víkingur

Ef þið komist ekki vinsamlegast látiði þá vita annað hvort hjá Daniel eða Gunna og vil líka minna á það að komið er frí frá æfingum fram í okt.

föstudagur, september 01, 2006

Úrslitaleikur í bikarnum á Sunnudaginn 

flokkur Fjölnis spilar á Sunnudaginn 3.Ágúst bikarúrslitaleik á móti Fylki og verður leikurinn spilaður áFjölnisvelli.Leikurinn byrjar kl 12,00.Ekki má gleyma því að bæði eldra og yngra árið í Fjölni eru að taka þátt í úrslitakeppni 4flokks í Íslandsmótinu um helgina og munu bæði liðin spila á Sunnudaginn á Fjölnisvelli gegn Fylki og ÍR kl 16,00.
Um að gera að koma og hvetja klúbbinn sinn í baráttunni.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?